Fotbolti.net
02.02.09 - 17:58
Magnús Már Einarsson

Chopra samdi við Cardiff 55 sekúndum fyrir lokun (Staðfest)

Chopra samdi við Cardiff 55 sekúndum fyrir lokun (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Michael Chopra framherji Sunderland hefur gengið til liðs við Cardiff og mun hann gera þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Chopra var á láni hjá Cardiff fyrr á leiktíðinni og hann lék einnig með liðinu áður en hann fór til Sunderland á sínum tíma.

Chopra verður á lánssamningi fram á sumar en þá munu kaupin ganga í gegn.

Litlu munaði að lánssamningurinn yrði ekki klár í tæka tíð fyrir lokun félagaskiptagluggans en Cardiff náði að klára pappírsmálin á síðustu stundu.

Félagaskiptaeyðublöðin skiluðu sér á skrifstofu ensku úrvalsdeildarinnar 55 sekúndum áður en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 17:00 og því er Chopra orðinn löglegur með Cardiff.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.