02.02.09 - 20:42
Hafliði Breiðfjörð
Calum Davenport lánaður til Sunderland (Staðfest)

Calum Davenport er kominn til Sunderland.

Mynd: Getty Images

Sunderland náði að ganga frá lánssamningi við West Ham um Calum Davenport áður en félagaskiptaglugginn lokaði fyrr í kvöld.
Davenport fór í gegnum læknisskoðun hjá Sunderland áður en hann varð annar leikmaðurinn sem kom til Sunderland í janúar. Hinn var Tal Ben Haim sem kom frá Manchester City á sunnudag.
Davenport er fyrrverandi U21 árs landsliðsmaður Englands. Hann var keyptur til West Ham á 3 milljónir punda frá Tottenham árið 2007.
Hann hittir fyrir tvo fyrrverandi félaga sína frá West Ham þegar hann kemur í Sunderland. Þá Anton Ferdinand og George McCartney.
Davenport hóf feril sinn hjá Coventry og hefur einnig leikið á láni hjá Southampton og Norwich. Hann féll niður goggunarröðina hjá West Ham eftir að Gianfranco Zola tók við liðinu og lék aðeins átta leiki á tímabilinu, og 14 í heildina á tveimur árum hjá félaginu.

Heimild: BBC