Fotbolti.net
02.02.12 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Ryan Nelsen til Tottenham (Staðfest)

Ryan Nelsen til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur samið við Ryan Nelsen en hann losnaði undan samningi hjá Blackburn í fyrrakvöld.

Þessi 34 ára gamli Ný-Sjálendingur hefur einungis leikið einn leik síðan í apríl síðastliðnum vegna meiðsla.
Hann er hins vegar klár í slaginn núna og verður í leikmannahópi Tottenham gegn Liverpool á mánudag.

,,Hann er heill heilsu og löglegur fyrir leikinn á mánudag,\" sagði Kevin Bond aðstoðarstjóri Tottenham í morgun.

,,Ég var að fá mér tebolla með honum í mötuneytinu. Hann er spenntur fyrir þessari áskorun.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.