Fotbolti.net
02.02.24 - 09:35
Elvar Geir Magnússon

Lorenz Assignon til Burnley á láni - Roberts lánaður til Leeds (Staðfest)

Assignon í leik með Rennes.

Assignon í leik með Rennes.

Canon

Mynd: EPA

Hægri bakvörðurinn Lorenz Assignon er kominn til Burnley á láni út tímabilið. Asssignon er 23 ára Frakki og kemur frá Rennes þar sem hann hefur leikið 60 leiki.

„Ég hafði úr nokkrum liðum að velja en ég spjallaði við stjórann (Vincent Kompany) og vildi strax koma hingað. Þetta er besta deild í heimi og ég vil taka þátt í henni," segir Assignon.

Burnley er í erfiðri stöðu í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni en það var nokkuð um hræringar á leikmannamálum félagsins á gluggadeginum í gær.

Annar franskur varnarmaður, miðvörðurinn Maxime Esteve, kom á láni frá Montpellier og fyrr í glugganum hafði sóknarmaðurinn David Datro Fofana komið á láni frá Chelsea.
Maxime Esteve til Burnley (Staðfest) - Skemmtilegt kynningarmyndband
TENGT EFNI

Maxime Esteve til Burnley (Staðfest) - Skemmtilegt kynningarmyndband

Varnarmaðurinn Connor Roberts hefur hinsvegar verið lánaður frá Burnley og mun spila út tímabilið með Leeds United í Championship-deildinni.

Vængmaðurinn Anass Zaroury var lánaður til Hull í sömu deild og varnarmaðurinn CJ Egan-Riley fór á lán til toppliðsins í Hollandi, PSV Eindhoven.

Vincent Kompany stjóri Burnley.

Vincent Kompany stjóri Burnley.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.