Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 13:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atli Barkar til Sogndal (Staðfest)
Mynd: Songdal
Fótbolti.net sagði frá því á föstudag að Atli Barkarson væri í viðræðum við félag í Noregi og rétt í þessu var hann tilkynntur sem nýr leikmaður Sogndal. Hann skrifar undir samning sem gildir til tímabilsins 2028.

Vinstri bakvörðurinn kemur frá Zulte Waregem í Belgíu hvar hann var í eitt og hálft ár. Hann var keyptur til Belgíu sumarið 2024 frá danska félaginu SönderjyskE og hjálpaði liðinu að fara up úr B-deildinni á síðasta tímabili. Síðasta vor fór hann í aðgerð vegna axlarmeiðsla og spilaði ekkert með Zulte Waregem fyrri hluta tímbilsins.

Atli þekkir til í Noregi því hann var á mála hjá Fredrikstad í stuttan tíma árið 2019 áður en hann gekk í raðir Víkings fyrir tímabilið 2020. Hjá Víkingi vann hann Íslands- og bikarmeistaratitilinnn 2021. Í kjölfarið fór hann til SönderjyskE í Danmörku .

Atli er 24 ára Húsvíkingur sem fór ungur að árum frá Völsungi í akademíu Norwich á Englandi. Hann á að baki fjóra A-landsleiki og 36 leiki fyrir yngri landsliðin.

Sogndal endaði í 8. sæti norsku B-deildarinnar á síðasta tímabili. Þrír Íslendingar voru nýlega hjá félaginu. Það voru þeir Jónatan Ingi Jónsson, Hörður Ingi Gunnarsson og Óskar Borgþórsson. Óskar var síðastur til að yfirgefa félagið þegar Víkingur keypti hann síðasta sumar. Emil Pálsson og Guðmundur Kristjánsson voru þar á undan hjá Sogndal.
Athugasemdir
banner
banner