Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Benzema til Al Hilal (Staðfest)
Mynd: Al Hilal
Karim Benzema, fyrrum handhafi Ballon d´Or verðlaunanna, hefur fært sig um set í Sádi-Arabíu en hann er kominn til toppliðs Al Hilal frá Al Ittihad.

Benzema er 38 ára gamall og kominn á síðustu metrana í atvinnumennsku.

Hann vann til fjölda verðlauna hjá Real Madrid frá 2009 til 2023 áður en hann fór til Al Ittihad.

Þar skoraði hann 57 mörk í 87 leikjum og vann deildina á síðustu leiktíð og náði í gull í konungsbikarnum.

Benzema vildi fara frá Al Ittihad í þessum glugga en hann hafnaði nýjum samningi hjá félaginu. Al Ittihad er í eigu PIF (ríkissjóðsins í Sádi-Arabíu), sem á einnig Al Hilal, Al Nassr og Al Ahli.

Frakkinn náði samkomulagi við Al Hilal á dögunum en skiptunum var frestað eftir að Cristiano Ronaldo neitaði að spila með Al Nassr í deildinni.

Ronaldo var að mótmæla þeim sem stýra ríkissjóðnum en hann segir önnur félög í forgangi þegar það kemur að styrkingu. Ronaldo heldur því fram að Al Nassr njóti ekki sömu fríðinda og því neitaði hann að spila.

Skiptum Benzema seinkaði því aðeins en koma hans til Al Hilal var loks staðfest í kvöld og mun hann hjálpa liðinu í titilbaráttu þeirra gegn Al Nassr. Al Hilal er á toppnum með 47 stig, einu stigi meira en Al Nassr.


Athugasemdir
banner
banner