Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 17:40
Elvar Geir Magnússon
Emil Holm til Juventus (Staðfest)
Emil Holm er mættur til Juventus.
Emil Holm er mættur til Juventus.
Mynd: Juventus
Juventus hefur fengið sænska bakvörðinn Emil Holm frá Bologna. Um er að ræða lánssamning með möguleika á kaupum eftir tímabilið.

Holm er 25 ára og lék 19 leiki með Bologna í öllum keppnum á þessu tímabili. Hann er með eitt mark og fimm stoðsendingar.

Juventus er með samkomulag um að geta keypt hann á 15 milljónir evra með greiðslum sem skiptast í þrjá hluta.

Mario lánaður til Bologna
Juventus hefur þá lánað Bologna á móti bakvörðinn portúgalska Joao Mario út tímabilið. Þessi 26 ára leikmaður spilaði aðeins 373 mínútur með Juve á tímabilinu og átti eina stoðsendingu. Hann kom til Juve frá Porto síðasta sumar.

Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ítölsku A-deildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 23 18 1 4 52 19 +33 55
2 Milan 22 13 8 1 35 17 +18 47
3 Napoli 23 14 4 5 33 21 +12 46
4 Juventus 23 13 6 4 39 18 +21 45
5 Roma 22 14 1 7 27 13 +14 43
6 Como 23 11 8 4 37 16 +21 41
7 Atalanta 23 9 9 5 30 20 +10 36
8 Lazio 23 8 8 7 24 21 +3 32
9 Bologna 22 8 6 8 32 27 +5 30
10 Sassuolo 23 8 5 10 27 29 -2 29
11 Udinese 22 8 5 9 25 34 -9 29
12 Cagliari 23 7 7 9 28 31 -3 28
13 Torino 23 7 5 11 22 40 -18 26
14 Genoa 23 5 8 10 27 34 -7 23
15 Cremonese 23 5 8 10 20 31 -11 23
16 Parma 23 5 8 10 15 30 -15 23
17 Lecce 23 4 6 13 13 30 -17 18
18 Fiorentina 23 3 8 12 25 36 -11 17
19 Pisa 23 1 11 11 19 40 -21 14
20 Verona 23 2 8 13 18 41 -23 14
Athugasemdir
banner