Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 10:24
Kári Snorrason
Gunnar Jónas tekur slaginn með Vestra (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Jónas Hauksson hefur framlengt samning sinn við Vestra og hefur skrifað undir tveggja ára áframhaldandi samning við bikarmeistarana.

Gunnar varð samningslaus eftir tímabil og var hann orðaður við Njarðvík, Gróttu, HK og Þór, ásamt því að hafa æft með Fram.

Hann er 26 ára fjölhæfur leikmaður sem getur spilað sem bakvörður, kantmaður og á miðsvæðinu.

Gunnar lék 25 leiki í Bestu deildinni á síðustu leiktíð ásamt því að spila stóra rullu í fræknum bikarsigri liðsins.

Vestri mun leika í Lengjudeildinni á komandi leiktíð en ásamt því mun liðið leika í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner