Njarðvík heldur áfram að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Hrafn Guðmundsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Hann er sóknarsinnaður leikmaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu. Hann samdi við Stjörnuna síðasta vetur eftir að hafa verið hjá KR og var á láni hjá KFA síðasta sumar. Hrafn skoraði í æfingaleik með Njarðvík fyrir rúmri viku síðan og lék aftur með liðinu í gær í Lengjubikarnum gegn ÍR.
Hann kemur á frjálsri sölu frá Stjörnunni en hann rifti samningi við Garðbæinga í upphafi árs.
Njarðvík hefur styrkt hópinn sinn frá síðasta tímabili. Eiður Aron Sigurbjörnsson, Bragi Karl Bjarkason, Guy Smit, Aron Einarsson og Felix Mathaus komu til félagsins fyrr í vetur.

Tilkynning Njarðvíkur
Hrafn er sóknarsinnaður leikmaður sem er fæddur árið 2006.
Hrafn lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir uppeldisfélag sitt, Aftureldingu árið 2021, þá 15 ára gamall.
Auk Aftureldingu hefur Hrafn leikið fyrir KR, Stjörnuna og KFA þar sem hann var á láni í fyrra frá Stjörnunni.
Alls á Hrafn 80 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ og hefur gert í þeim 12 mörk.
Þar að auki á Hrafn 10 unglingalandsliðsleiki fyrir Íslands hönd í U16, U17 og U18 ára landsliðum.
Hrafn lék einmitt sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík í 3-1 sigrinum gegn ÍR í gær í Lengjubikarnum.
Knattspyrnudeildin býður Hrafn hjartanlega velkominn til Njarðvíkur og hlakkar til að sjá hann á vellinum í grænu treyjunni í sumar!
Athugasemdir