Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 19:28
Brynjar Ingi Erluson
Kalvin Phillips til Sheffield United (Staðfest) - „Fékk aldrei traustið frá Guardiola"
Mynd: EPA
Kalvin Phillips, miðjumaður Manchester City, er genginn til liðs við Sheffield United á láni út tímabilið.

Þessi þrítugi leikmaður hefur verið á mála hjá Manchester City frá 2022 eftir að hafa gert ótrúlega hluti með Leeds.

Hann fann aldrei taktinn hjá Man City og í raun verið skugginn af sjálfum sér síðustu ár.

Á þessu tímabili lék hann aðeins sjö mínútur með Man City og ákvað hann því að leita annað. Fjölmörg félög höfðu áhuga á að fá hann í glugganum, en Phillips vildi snúa aftur til Yorkshire í von um að endurvekja ferilinn.

Man City mun greiða stærstan hluta af launum Phillips á meðan hann dvelur hjá Sheffield United.

„Phillips fékk aldrei traustið frá Pep Guardiola. Þessi félagaskipti gerðust hratt því hann æfði með Man City fyrr í dag," sagði Ben Ransom á Sky.

Sheffield United er í 17. sæti B-deildarinnar með 36 stig, sjö stigum fyrir ofan fallsæti.


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 30 17 7 6 63 35 +28 58
2 Middlesbrough 30 17 7 6 47 29 +18 58
3 Hull City 29 16 5 8 48 40 +8 53
4 Ipswich Town 29 14 9 6 49 28 +21 51
5 Millwall 30 14 8 8 37 36 +1 50
6 Wrexham 30 12 11 7 44 37 +7 47
7 Derby County 30 12 9 9 44 37 +7 45
8 Preston NE 30 11 11 8 37 34 +3 44
9 Bristol City 30 12 7 11 40 36 +4 43
10 Watford 29 11 10 8 39 35 +4 43
11 QPR 30 12 7 11 42 43 -1 43
12 Stoke City 30 12 6 12 34 28 +6 42
13 Birmingham 30 11 9 10 41 38 +3 42
14 Southampton 30 10 10 10 43 41 +2 40
15 Swansea 30 11 6 13 34 37 -3 39
16 Leicester 30 10 8 12 40 45 -5 38
17 Sheffield Utd 29 11 3 15 40 42 -2 36
18 Charlton Athletic 29 9 8 12 29 38 -9 35
19 Norwich 30 9 6 15 37 42 -5 33
20 Portsmouth 28 8 9 11 27 37 -10 33
21 West Brom 30 9 5 16 32 47 -15 32
22 Blackburn 29 7 8 14 26 38 -12 29
23 Oxford United 29 6 9 14 27 38 -11 27
24 Sheff Wed 29 1 8 20 18 57 -39 -7
Athugasemdir
banner