Fílabeinsstrendingurinn David Datro Fofana er annar Chelsea-maðurinn sem er lánaður til Strasbourg í dag, en skiptin voru staðfest nú rétt í þessu.
Sóknarmaðurinn kom til Chelsea frá Molde fyrir þremur árum og verið lánaður fjórum sinnum frá félaginu.
Hann eyddi tímabilinu 2023-2024 á láni hjá Union Berlín og Burnley, og skoraði fjögur mörk.
Á síðasta tímabili eyddi þessi 22 ára gamli leikmaður tímabilinu á láni hjá Goztepe í Tyrklandi.
Hann fylgir nú Argentínumanninum Aaron Anselmino til Strasbourg í Frakklandi, en báðir munu leika með liðinu út tímabilið.
Strasbourg er í 7. sæti með 30 stig, níu stigum frá Meistaradeildarsæti.
Welcome to Racing, David Datro Fofana ????
— Racing Club de Strasbourg Alsace English (@RCSA_English) February 2, 2026
pic.twitter.com/GSyu76DePT
Athugasemdir



