Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   mán 02. febrúar 2026 19:18
Elvar Geir Magnússon
O'Riley farinn frá Frakklandi og mættur aftur til Brighton (Staðfest)
Matt O'Riley skallar boltann í leik með Marseille.
Matt O'Riley skallar boltann í leik með Marseille.
Mynd: EPA
Brighton hefur staðfest að miðjumaðurinn Matt O'Riley hafi verið kallaður til baka eftir lánsdvöl hjá Marseille.

Danski landsliðsmaðurinn fór til franska félagsins í ágúst og lék 25 leiki fyrir lærisveina Roberto De Zerbi.

„Við tökum vel á móti Matt til baka. Við vitum hvaða gæðum hann býr yfir og hann mun passa vel inn hjá okkur," segir Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

„Hann átti góðan lánstíma hjá Marseille, spilaði í frönsku deildinni og í Meistaradeildinni. Við teljum að hann geti haft jákvæð áhrif á lið okkar fyrir seinni hluta tímabilsins."

O'Riley vann sér ekki inn byrjunarliðssæti hjá Marseille en kom oft við sögu af bekknum. Hann er ennþá með þrjú og hálft ár eftir af samningi sínum við Brighton. Hann var keyptur til félagsins úr röðum Celtic sumarið 2024 fyrir 25 milljónir punda og hefur spilað 25 keppnisleiki á tíma sínum á Englandi.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner