Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   mán 02. febrúar 2026 20:52
Brynjar Ingi Erluson
Saint-Maximin aftur til Frakklands (Staðfest)
Mynd: Lens
Hinn öskufljóti kantmaður, Allan Saint-Maximin, er kominn aftur heim til Frakklands en hann samdi í kvöld við Lens sem er í titilbaráttunni í frönsku úrvalsdeildinni.

Franski leikmaðurinn rifti samningi sínum við Club America í Mexíkó eftir að börn hans urðu fyrir stöðugum kynþáttafordómum í landinu.

Saint-Maximin, sem er 28 ára gamall, rifti því við félagið og var ekki lengi að finna sér nýtt félag en hann samdi við Lens út þetta tímabil.

Lens er á svakalegu skriði og situr í öðru sæti frönsku deildarinnar með 46 stig, tveimur stigum frá Frakklands- og Evrópumeisturum Paris Saint-Germain.

Vængmaðurinn lék áður með Bastia, Mónakó, Nice og Saint-Etienne í Frakklandi. Hann spilaði með Newcastle United í fjögur ár og var í miklu uppáhaldi stuðningsmanna áður en hann hélt til Sádi-Arabíu árið 2023.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner