Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 17:24
Kári Snorrason
Völsungur fær franskan markmann (Staðfest)
Mynd: Græni herinn
Völsungur hefur samið við franska markvörðinn Jeffrey Baltus. Baltus er 34 ára og lék síðast í nepölsku úrvalsdeildinni með Lalitpur City.

Hann kemur upp úr akademíu Auxerre í Frakklandi og spilaði hann með varaliði félagsins fyrir rúmum tíu árum síðan. Síðan þá hefur hann spilað í neðri deildum í Frakklandi, Belgíu og efstu deild í Nepal.

Samkvæmt síðunni Transfermarkt var hann síðast á mála hjá bútanska liðinu Paro FC en hann spilaði engann leik fyrir félagið. Baltus er væntanlegur til landsins þann 14. febrúar samkvæmt tilkynningu Völsungs.

Ævintýramaðurinn Patrick De Wilde tók við liðinu í haust en hann stýrði síðast kvennalandsliði Nepal áður en hann hélt til Húsavíkur.
Athugasemdir
banner
banner