02.03.07 - 13:58
Magnús Már Einarsson
Kishishev til Leeds á láni (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Leeds United sem er á botni ensku fyrstu deildarinnar hefur fengið Radostin Kishishev að láni frá Charlton Athletic í einn mánuð.
Kishishev sem er 32 ára leikur oftast á miðjunni en hann er fjölhæfur og gæti vel dottið í hægri bakvarðarstöðuna hjá Leeds í leik liðsins gegn Sheffield Wednesday um helgina.
Kishishev sem á 59 landsleiki að baki fyrir Búlgaíu kemur til Leeds á góðum tíma þar sem að bæði Armando Sa og Gary Kelly eiga við meiðsli að stríða sem stendur.
Kishishev sem á 59 landsleiki að baki fyrir Búlgaíu kemur til Leeds á góðum tíma þar sem að bæði Armando Sa og Gary Kelly eiga við meiðsli að stríða sem stendur.
Heimild: Sky
