Fotbolti.net
02.03.07 - 18:34
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Francis Jeffers lánaður til Ipswich (Staðfest)

Jeffers í leik með Charlton á sínum tíma

Jeffers í leik með Charlton á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Francis Jeffers, sóknarmaður Blackburn, hefur verið lánaður til Championship félagsins Ipswich í einn mánuð.
Leikmaðurinn skrifaði undir samning í dag og er stjórinn Jim Magilton vongóður um að hann geti tekið þátt í deildarleiknum gegn QPR á morgun.

Þessi fyrrum leikmaður Everton og Arsenal gekk til liðs við Blackburn á frjálsri sölu síðasta sumar en hefur ekki tekist að vinna sér inn byrjunarliðssæti hjá Mark Hughes.

Honum hefur aðeins tekist að skora eitt mark í fimmtán leikjum fyrir Rovers þó að hann hefur aðeins byrjað þrjá af þessum leikjum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.