Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   mán 02. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Ingó Sig skoraði með skoti fyrir aftan miðju
Ingólfur skoraði geggjað mark fyrir Reyni Sandgerði
Ingólfur skoraði geggjað mark fyrir Reyni Sandgerði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingólfur Sigurðsson minnti heldur betur á sig er hann skoraði tvennu fyrir Reyni Sandgerði í 3-1 sigri á Árbæ í Lengjubikarnum um helgina, en annað markið var sérstaklega snoturt.

Hann er að taka undirbúningstímabilið með Reynismönnum en þetta var annar leikur hans fyrir félagið.

Ingólfur hefur alltaf verið með mikil gæði og sýndi þau í leiknum gegn Árbæingum, en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði með glæsilegu skoti fyrir aftan miðju.

Þetta minnti óneitanlega á Ingólf á yngri árum þegar hann var á mála hjá Heerenveen. Þar raðaði hann inn mörkunum og skoraði einmitt keimlíkt mark í einum leiknum.

„Ég reyni þetta þegar ég er í aðstöðu til þess, sem er reyndar ekkert það oft. Mér finnst mjög gaman að taka skot af löngu færi og það er ekki leiðinlegt að sjá þegar boltinn fer upp í hornið. Vonandi mun ég skora fleiri svipuð mörk í framtíðinni,“ sagði Ingólfur í löngu viðtali við Fótbolta.net árið 2009.

Hægt er að sjá markið hans gegn Árbæ hér fyrir neðan, en því miður virðist hitt markið með Heerenveen horfið af vef Youtube.


Athugasemdir
banner