Fotbolti.net
02.04.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Oliver Jaeger til HK (Staðfest)

Oliver Jaeger.

Oliver Jaeger.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Landsbankadeildarlið HK hefur samið við svissneska framherjann Oliver Jaeger og kom hann hingað til lands á laugardaginn. Jaeger sem er 23 ára gamall var til reynslu hjá HK í febrúar en hann skoraði meðal annars í 3-1 sigri liðsins á Keflavík í æfingaleik.
,,Hann leit vel út þegar hann var hjá okkur í vetur. Það á eftir að koma í ljós hvernig þetta þróast en vonandi á hann eftir að styrkja okkur," sagði Gunnar Guðmundsson þjálfari HK við Fótbolti.net í gær.

Framherjinn bráðefnilegi Kolbeinn Sigþórsson hjá HK hefur vakið athygli erlendra liða í vetur en hann er á leið til Ajax á reynslu. Gunnar vonast eftir því að Kolbeinn verði með HK í sumar.

,,Hann er í mjög góðu standi núna og það er ekki spurning að hann er klár í þennan slag. Vonandi verður hann hjá okkur í sumar," sagði Gunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.