Fotbolti.net
02.04.08 - 08:01
Magnús Már Einarsson

Auðunn Blöndal í Hvöt (Staðfest)

Auddi á fleygiferð í leik með KF Nörd gegn FH haustið 2006.

Auddi á fleygiferð í leik með KF Nörd gegn FH haustið 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal hefur gengið til liðs við 2.deildarlið Hvöt og mun hann fá félagaskipti á næstunni.
,,Hann hefur skorað mörk í öllum deildum nema úrvalsdeild. Ég spilaði oft á móti honum í gamla daga og veit vel hvað hann getur í fótbolta, vonandi sýnir hann það í sumar," sagði Kristján Óli Sigurðsson þjálfari Hvatar við Fótbolta.net.

Auðunn þótti liðtækur sóknarmaður á árum áður en hann hefur ekki leikið í deildarkeppninni síðan 2001.

Þá skoraði hann þrjú mörk í 14 leikjum með Skallagrími í annarri deildinni en áður hafði hann leikið með uppeldisfélagi sínu Tindastóli og einnig Neista Hofsósi.

Hvöt kom upp úr þriðju deildinni síðastliðið haust en liðið hefur leikið vel í æfingaleikjum í vetur og í Lengjubikarnum þar sem liðið hefur unnið fyrstu tvo leiki sína.

Sjá einnig:
Hvað er að frétta af Blönduósi (27.mars)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.