02.04.10 - 12:02
Hafliði Breiðfjörð
Lars Ivar Moldskred í KR (Staðfest)

KR er komið með markvörð fyrir sumarið.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

KR er komið með markvörð fyrir sumarið.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
KR hefur fengið markvörð til að verja mark liðsins í sumar en á vef félagsins í dag var staðfest að Norðmaðurinn Lars Ivar Moldskred hafi samið við félagið út komandi leiktíð.
Hann er 31 árs gamall og lék upphaflega með Tjørvåg IL og síðan Bergsøy IL á sínum heimaslóðum að því er segir á vef KR í dag.

Árið 2000 gekk hann til liðs við IL Hødd. Ári síðar vakti hann fyrst athygli á landsvísu þegar Hødd (þá í næst efstu deild) sló margfalda meistara Rosenborg út í bikarnum eftir vítakeppni. Moldskred varði tvær spyrnur í vítakeppninni.
Moldskred lék 142 deildarleiki með Hødd og skoraði eitt mark, með skoti úr eigin vítateig í 7-0 sigri á Lørenskog árið 2002. Hann átti auk þess seinna á ferlinum eitt sláarskot eftir langt útspark.
Árið 2004 gekk hann til liðs við Molde, fór þaðan til Lillestrøm árið 2007 en í fyrra lék hann 26 leiki með Strømsgodset í úrvalsdeildinni. Í vetur stefndi í að hann færi til úrvalsdeildarfélagsins Kongsvinger IL en félagið valdi Thomas Myhre, fyrrum landsliðsmarkmann, í staðinn.
Auk hans hefur KR fengið markvörðinn Þórð Ingason á láni frá Fjölni út tímabilið og þeir tveir munu berjast um markmannsstöðuna hjá liðinu. Stefán Logi Magnússon, Andre Hansen og Atli Jónasson sem léku í marki KR á síðustu leiktíð hafa allir farið til Noregs til að spila síðan þá.

Heimild: Vefur KR