Fotbolti.net
02.04.10 - 18:47
Hafliði Breiðfjörð

Víðir fær þrjá á láni frá Keflavík (Staðfest)

Þorsteinn Þorsteinsson í leik með Víði í fyrra. Hann er kominn aftur til félagsins á láni frá Keflavík.

Þorsteinn Þorsteinsson í leik með Víði í fyrra. Hann er kominn aftur til félagsins á láni frá Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Víðir úr Garði hefur fengið þrjá unga drengi á láni frá Keflavík en þetta eru þeir Tómas Karl Kjartansson, Gísli Örn Gíslason og Þorsteinn Þorsteinsson. Þeir verða allir á láni hjá Keflavík út þessa leiktíð en áður en gengið var frá því gerðu Gísli og Þorsteinn nýja samninga við félagið.
Allir eru þeir nú staddir í Færeyjum þar sem Víðir er þessa stundina í æfingaferð. Liðið vann þar lið VB með þremur mörkum gegn tveimur í fyrrakvöld.

Gísli og Þorsteinn skoruðu báðir í þeim leik og Hörður Ingi Harðarson skoraði þriðja markið.

Af Keflvíkingum er svo það að frétta að liðið er að fara í æfingaferð til Spánar eftir helgi þar sem allir leikmenn liðsins eru klárir í slaginn nema Haukur Ingi Guðnason sem hefur verið meiddur og fer ekki með. Hann er þó farinn að skokka og styttist í að hann verði klár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.