Fotbolti.net
02.05.08 - 13:20
Hafliði Breiðfjörð

Jimmy Höyer til liðs við Víking (Staðfest)

Jimmy Höyer til liðs við Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

1. deildarlið Víkings hefur skrifað undir samning við danska leikmanninn Jimmy Hoyer um að ganga til liðs við félagið frá AGF í Danmörku. Þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson stjórnarmaður hjá Víkingi í samtali við Fótbolta.net í dag.
Hoyer er þrítugur og getur spilað sem bakvörður og kantmaður. Víkingur hefur komist að samkomulagi við danska félagið um kaup á leikmanninum og Hoyer hefur sjálfur skrifað undir eins árs samning við Fossvogsfélagið.

Hann kemur til liðs við liðið á mánudag og verður því klár í slaginn um aðra helgi er Víkingur mætir Selfossi í fyrstu umferð 1. deildarinnar. Hjá Víkingi hittir Hoyer fyrir Jesper Tollefsen sem er þjálfari liðsins en þeir höfðu áður starfað saman hjá AGF.

Heimir sagði í samtali við Fótbolta.net í dag að félagið hafi skoðað möguleikann á öðrum dönskum leikmönnum en það hafi ekki gengið að þessu sinni. Hann sagði félagið ekki útiloka að styrkja sig frekar áður en félagaskiptaglugganum lokar 16. maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.