Fotbolti.net
02.05.11 - 17:45
Brynjar Ingi Erluson

Elínborg Ingvarsdóttir til ÍBV (Staðfest)

Elínborg Ingvarsdóttir til ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Elínborg Ingvarsdóttir er gengin til liðs við ÍBV frá Grindavík, en hún skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í síðustu viku.
Hún staðfesti þetta við Fótbolta.net, en hún var með ÍBV á dögunum í æfingarferð á Spáni.

Hún er 21 árs gömul og leikur sem miðjumaður, en hún er uppalin í Grindavík og hefur leikið þar öll sín uppvaxtarár.

Hún hóf meistaraflokksferil sinn árið 2005 með Grindavík og hefur leikið 67 leiki og skorað 8 mörk fyrir félagið.

Þá á hún að baki fjóra leiki með A-landsliði Íslands þar sem hún spilaði á Algarve Cup árið 2010. Hún á þá einnig 30 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, þá U17 og U19 ára liðin.

ÍBV hefur styrkt sig vel fyrir komandi tímabil, en liðið hefur fengið þær Julie Nelson, Birnu Berg Haraldsdóttur frá FH, Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur frá Breiðablik og Dönku Podovac og Vesnu Smiljovic frá Þór/KA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.