Fotbolti.net
02.05.11 - 14:05
Elvar Geir Magnússon

Haukur Hinriksson í Völsung (Staðfest)

Haukur í tæklingu.

Haukur í tæklingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Völsungur úr annarri deild hefur fengið varnarmanninn Hauk Hinriksson á láni frá KA.
Haukur er 21 árs gamall miðvörður en hann getur einnig getur leikið á miðjunni.

Í fyrra spilaði Haukur alla 22 leiki KA í fyrstu deildinni og skoraði í þeim tvö mörk. Hann lék einnig fjóra leiki með KA í VISA-bikarnum.

Haukur mun væntanlega spila sinn fyrsta leik með Völsungi þegar liðið mætir Tindastól/Hvöt í annarri umferð VISA-bikarsins á sunnudag.

Völsungur mætir síðan Fjarðabyggð í fyrstu umferðinni í annarri deild laugardaginn 14. maí.

Heimild: Heimasíða Völsungs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.