02.06.06 - 14:25
Magnús Már Einarsson
Gunnar Hilmar í Leikni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Leiknir úr fyrstu deild hefur fengið miðjumanninn örfætta Gunnar Hilmar Kristinsson. Gunnar lék með Keflvíkingum síðastliðið sumar en hætti hjá liðinu í haust.
Hann lék tíu leiki í Landsbankadeildinni síðasta sumar og fékk eitt rautt spjald með Keflvíkingum en hann skoraði einnig gegn FC Etzella í Evrópukeppninni.
Gunnar lék áður með ÍR og hann getur mætt sínum gömlu félögum með Leikni þann 16.júní þegar að þau mætast í fjórðu umferð VISA-bikarsins. Þá er Gunnar kominn með leikheimild með Leikni og hann getur því spilað með liðinu gegn KA í fyrstu deildinni á mánudaginn.