02.06.06 - 14:41
Magnús Már Einarsson
Þróttur fær Bandaríkjamann (Staðfest)

Þróttarar fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttarar fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
24 ára Bandaríkjamaður að nafni Uche Asika hefur fengið leikheimild með fyrstu deildarliði Þróttar en hann hefur æft með liðinu undanfarnar tvær vikur.
,,Hann er búinn að vera æfa með okkur síðustu tvær vikurnar. Okkur langar að sjá hvernig hann kemur út. Hann hefur ýmislegt til að bera og okkur langar að sjá hann og eiga þann möguleika á að geta notað hann ef að hann stendur sig vel á æfingum," sagði Atli Eðvaldsson þjálfari Þróttara.
Asika sem leikur allar stöður framarlega á vellinum kom til Þróttara á eigin vegum en hann lék í háskóla í Alabama á sínum tíma.
Asika sem leikur allar stöður framarlega á vellinum kom til Þróttara á eigin vegum en hann lék í háskóla í Alabama á sínum tíma.
