Fotbolti.net
02.06.11 - 11:27
Sebastían Sævarsson Meyer

Ruud van Nistelrooy til Malaga (Staðfest)

Ruud van Nistelrooy á leið í spænska boltann á ný.

Ruud van Nistelrooy á leið í spænska boltann á ný.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Í gær var tilkynnt að Malaga hefur fengið Ruud van Nistelrooy til liðs við sig eftir að félagið nældi sér í markahrókinn á frjálsri sölu frá þýska liðinu Hamburger SV.
Nistelrooy var í fimm ár á skotskónum hjá Manchester United áður en hann gekk til liðs við Real Madrid árið 2006. Í fyrravetur var hann svo seldur til Hamburger en hann hefur síðan þá skorað 17 mörk fyrir félagið.

Samningur hans rennur út í sumar en þar sem hann ákvað að framlengja ekki við Hamburger mun hann snúa aftur til Spánar og spila þar fyrir Malaga á næstu leiktíð. Hann hefur þegar staðist læknisskoðun og skrifað undir eins árs samning við liðið.

Þessi 34 ára gamli Hollendingur mun því spila undir stjórn Manuel Pellegrini, fyrrverandi þjálfara Real Madrid, á ný en hann er nú þjálfari Malaga. Nistelrooy á ekki beint jákvæðar minningar af Pellegrini en það var hann sem seldi Nistelrooy til Hamburger eftir að hafa spilað einungis einn leik í spænsku úrvalsdeildinni undir hans stjórn.

Nistelrooy mun þó að öllum líkindum fá meiri spilatíma í spænsku úrvalsdeildinni með Malaga sem ætlar samt sem áður að styrkja hópinn til muna og berjast um sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.