02.06.11 - 18:24
Hafliði Breiðfjörð
Sonur fyrri þjálfara tekur við Tindastól/Hvöt (Staðfest)
27 ára leikmaður leggur skóna á hilluna og tekur við þjálfun liðsins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Jón Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari Tindastóls/Hvatar en hann tekur við af Sigurði Halldórssyni föður sínum sem var sagt upp fyrr í vikunni.
Halldór Jón, eða Donni, er 27 ára gamall. Hann hefur verið leikmaður Tindastóls síðustu ár og hefur spilað tæplega 100 leiki fyrir félagið.
Hann mun leggja skóna til hliðar og einbeita sér að þjálfun út tímabilið en auk þess að þjálfa meistaraflokkinn mun hann stýra öðrum flokki.
Halldór Jón á að baki langan feril sem þjálfari og er að útskrifast með UEFA-A þjálfararéttindi. Undanfarið hefur hann verið starfandi þjálfari hjá knattspyrnufélaginu Val.
,,Donni er boðinn velkominn í nýtt starf og það er von okkar að hann eigi farsælan feril framundan,\" segir á heimasíðu Tindastóls.
Tindastóll/Hvöt er án stiga eftir þrjá leiki í annarri deildinni en liðið mætir ÍH á heimavelli annað kvöld.