Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 02. júní 2020 18:00
Elvar Geir Magnússon
Juventus vill fá Thuram aftur til borgarinnar
Marcus Thuram.
Marcus Thuram.
Mynd: Getty Images
Ítalíumeistarar Juventus hafa áhuga á að fá Marcus Thuram frá Borussia Mönchengladbach.

Marcus ólst upp í Tórínó en faðir hans, Lilian Thuram, lék fyrir Juventus 2001 til 2006.

Marcus fæddist í ágúst 1997, ári eftir að pabbi hans gekk í raðir Parma.

Hann hefur leikið fantavel í þýsku Bundesligunni og er kominn með fjórtán mörk og níu stoðsendingar í 37 mótsleikjum fyrir Borussia Mönchengladbach,

Hann kom til Þýskalands frá Guingamp síðasta sumar fyrir 9 milljónir evra en verðmæti hans er nú talið um 25 milljónir evra.

Hann hefur verið orðaður við Roma, Inter og Fiorentina en franskir fjölmiðlar segja Juventus líklegast í baráttunni.

Marcus Thuram getur spilað í öllum sóknarstöðunum.

Sjá einnig:
Marcus Thuram heiðraði minningu George Floyd eftir að hafa skorað
Athugasemdir
banner
banner
banner