Liverpool lét Arne Slot fara á laugardaginn aðeins ári eftir að hann gerði liðið að Englandsmeistara. Liðið hafnaði í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili sem verður að teljast mikil vonbrigði miðað við kaup síðasta sumars.
Félagið er komið langt í viðræðum við spænska stjórann Andoni Iraola sem hefur látið af störfum hjá Bournemouth eftir þriggja ára veru.
Fótbolti.net tók púlsinn á þremur íslenskum stuðningsmönnum Liverpool og lagði fyrir þá eftirfarandi fjórar spurningar.
1) Arne Slot farinn, ánægður með þá ákvörðun?
2) Andoni Iraola væntanlegur arftaki - Hvernig líst þér á hann?
3) Er Iraola nægilega stór prófíll?
4) Hefðir þú viljað sjá einhvern annan taka við?
Félagið er komið langt í viðræðum við spænska stjórann Andoni Iraola sem hefur látið af störfum hjá Bournemouth eftir þriggja ára veru.
Fótbolti.net tók púlsinn á þremur íslenskum stuðningsmönnum Liverpool og lagði fyrir þá eftirfarandi fjórar spurningar.
1) Arne Slot farinn, ánægður með þá ákvörðun?
2) Andoni Iraola væntanlegur arftaki - Hvernig líst þér á hann?
3) Er Iraola nægilega stór prófíll?
4) Hefðir þú viljað sjá einhvern annan taka við?
Hrafnkell Freyr Ágústsson
1)
Ég er ánægður með að hann sé farinn. Mér finnst að þegar þú missir stuðningsmenn frá þér og leikmenn, eins og þetta leit út í lokin, þá ertu búinn. Ég hafði hrikalega gaman af honum þegar hann vann þetta í fyrra – týpan og hvernig hann var í tilsvörum. En þegar á móti blæs sést úr hverju menn eru gerðir. Hann var orðinn þreytandi í viðtölum, gaf léleg svör og kenndi öðrum um. Vonandi fær hann gott gigg, þetta er góður kall. Lítur allavegana þannig út.
2)
Ég veit það ekki. Hann var flottur með Bournemouth. Ég ætla ekki að tala um hann eins og hann sé einhver taktískur snillingur í hápressu maður á mann. Þegar þú kemur í stóran klúbb eins og Liverpool þá er númer eitt, tvö og þrjú að vera leiðtogi - fá stuðningsmenn og leikmenn með sér. Ég átta mig ekki á því hvort að hann sé það. Ég leyfi tímanum að líða og ákveð síðan hvað mér finnst um hann síðar.
3)
Nei, hann er það ekki. Hann var leikmaður Athletic Bilbao, þjálfaði Rayo Vallecano og Bournemouth svo hann er klárlega ekki nægilega stór prófíll. Þetta er í fyrsta sinn sem hann fær stórlið og einhvers staðar verða menn að byrja. Oftast byrja menn með lítinn leikmanna- eða þjálfaraprófíl, hann er reyndar með bæði. Hann hefur mikið að sanna.
4)
Já og nei. Mér finnst ekki margir spennandi þjálfarar á lausu í dag. Við hefðum þurft að kaupa einhvern. Ég hef alltaf verið hrifinn af Sebastian Hoeness. Það er ára yfir honum en ég veit ekki hvort hann sé tilbúinn í þetta. Að sjálfsögðu hefði ég verið til í Luis Enrique en það eru auðvitað bara draumórar.
Arnar Laufdal Arnarsson
1)
Já, ég er ánægður með að Slot sé farinn. Ég tel hann hins vegar vera vel hæfan til þess að stjórna Liverpool en miðað við síðustu vikurnar á tímabilinu virðist hann bara vera að missa hópinn og bakka meira frá gildunum sem eru innan Liverpool. Eftir yfirlýsinguna frá Salah vissi maður að þetta væri endanlega búið, leikmenn fóru að „like-a“ færsluna o.s.frv. Þá bara vissi maður að hann væri kominn á endastöð, því miður.
2) og 3)
Ég tel að Iraola sé rétti kosturinn á þessum tímapunkti, miðað við það sem maður hefur séð og lesið um hans leikstíl virðist þetta henta Liverpool mjög vel, mikil ákefð, pressa fram á við, sóknarleikur, það sem Liverpool snýst í raun og veru um. Ég hef mikla trú á þeim sem stjórna Liverpool á bakvið tjöldin, ákvarðanir eru teknar út frá gögnum, stefna sem hefur reynst félaginu frábærlega síðasta áratuginn (þótt ég setji reyndar stór spurningarmerki við hvernig þeir höndla oft á tíðum brottför leikmanna).
4)
Í raun og veru ekki, Luis Enrique var draumakostur en ég held bara að Iraola henti töluvert betur en Alonso sem gerði frábærlega með fimm manna vörn en ekki svo mikið með fjóra í vörn, þótt ég haldi reyndar að það sé hryllingur að reyna að stjórna þessum Real Madrid prímadonnum.
Kristján Atli Ragnarsson
1)
Ég myndi ekki segja að ég sé ánægður, meira feginn. Þetta var erfið ákvörðun en rétt. Hann fékk mjög slæm spil á hendi í vetur og fæst af því sem aflaga fór var honum að kenna en hann ber alltaf ábyrgð á því sem skilar sér inn á völlinn og hann náði aldrei að búa til plan B eða leysa það sem aflaga hafði farið.
Mér fannst hann einfaldlega hafa átt að geta gert betur en hann nýtti ekki leikmannahópinn til fulls, var of þrjóskur og fastheldinn á sína hugmyndafræði þegar hún hrundi og virtist halda að hann væri súkkulaðikleina í allan vetur og því til lítils að gera annað en að bíða eftir næsta tímabili. Það reyndist honum dýrkeypt. Þetta er góður stjóri sem átti slæmt tímabil, gangi honum vel í næsta starfi.
2)
Mér líst mjög vel á Iraola. Að mínu mati eru bara tveir stjórar að störfum í dag sem við getum kallað „sure thing“, Luis Enrique og Hansi Flick, og hvorugur þeirra er á lausu í sumar. Klopp er hættur að þjálfa og Guardiola farinn í verðskuldað frí, aðrir snillingar eins og Ancelotti orðnir eldri.
Af þeim sem eftir eru finnst mér Iraola einn mest spennandi kosturinn. Það er alltaf spurning hvort aðferðir og leikstíll Iraola hjá minna liði geti virkað á stóra sviðinu undir meiri pressu, en það hefði alltaf þurft að taka þann séns, sama hvaða þjálfari er ráðinn. Ég hef verið hrifinn af hans aðferðum og leikstíl og hlakka til að komast að því hvort Liverpool hafi fundið óslípaðan demant eða hvort starfið reynist honum ofviða. Ég held með honum.
3)
Einhver sagði um helgina að ráðningin á Iraola beint frá Bournemouth væri svipað og ef menn hefðu ráðið Jürgen Klopp beint frá Mainz, en ekki eftir að hann vann titla með Dortmund. Hefði Klopp orðið jafn góður stjóri hjá Liverpool ef hann hefði komið beint frá Mainz og ekki haft reynsluna af sinni tíð með Dortmund? Maður spyr sig.
Iraola hefði kannski þurft að taka milliskref í klúbb sem er stærri en Bournemouth en minni en Liverpool, en kannski ekki. Aðeins tíminn mun leið það í ljós hvort þetta tækifæri kom of snemma á hans ferli.
4)
Ég hef verið mikill Xabi Alonso-maður og fylgdist náið með honum hjá Leverkusen. Ég veit að hann neitaði Liverpool þá og vildi bíða eftir Real Madrid, sem fór svo ekki vel með hann (og kom engum á óvart, sá klúbbur étur þjálfara í morgunmat) og það virðist eitthvað sitja í stjórnendum Liverpool sem töldu hann því ekki koma til greina í þetta skiptið.
Ég hefði viljað sjá þá íhuga Xabi, mér finnst hann smellpassa hjá Liverpool og ekki bara af því að hann er fyrrverandi leikmaður heldur af því að ég myndi vilja sjá liðið spila sams konar knattspyrnu og hann bauð upp á hjá Leverkusen (hvað sem umræðu um þrjá miðverði líður). Þá eru hjá Liverpool í dag þeir Florian Wirtz og Jeremie Frimpong sem þekkja aðferðir Alonso vel. Ef við viljum ná því besta úr Wirtz þá hefði margt verið vitlausara en að ráða manninn sem gerði hann að stórstjörnu.
Þannig að ég viðurkenni að ég er sennilega pirraðri en flestir yfir því að Xabi hafi ekki verið ráðinn, en að því sögðu þá líst mér ekkert endilega verr á Iraola en Alonso. Þetta eru spennandi þjálfarar og það verður mjög áhugavert að sjá hvernig þeim reiðir af með stórlið í Englandi á komandi leiktíð.





