Fotbolti.net
02.07.08 - 06:00
Eyþór Ernir Oddsson

Ben Arfa til Marseille (Staðfest)

Ben Arfa til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski miðjumaðurinn Hatem Ben Arfa er genginn til liðs við Marseille frá frönsku meisturunum í Lyon.
Ben Arfa hefur spilað mjög vel í herbúðum Lyon og hefur vakið athygli margra stórliða og var meðal annars mikið orðaður við Arsenal fyrir skömmu.

Marseille og Lyon gengu frá kaupum og kjörum í gær og er Ben Arfa því þegar orðinn leikmaður Marseille en kaupverðið var ekki gefið upp.

,,Kaupin eru gengin í gegn frá og með 30. júní,\" sagði í yfirlýsingu frá Marseille.

,,Mér er létt. Eina sem ég get sagt núna er að ég er leikmaður Marseille,\" sagði Ben Arfa við fjölmiðla í gær..

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.