Fotbolti.net
02.07.08 - 10:48
Magnús Már Einarsson

Jonas \"Spiderman\" Gutierrez til Newcastle (Staðfest)

Jonas Gutierrez í leik með Mallorca.

Jonas Gutierrez í leik með Mallorca.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur fengið Jonas Gutierrez frá Mallorca og hefur leikmaðurinn skrifað undir fimm ára samning við enska félagið.
Jonas, sem verður 25 ára á næstunni, er frá Argentínu en hann getur leikið í fremstu víglínu og á hægri kanti.

,,Ég get ekki lýst því hve spenntur ég er að fara til Newcastle United. Úrvalsdeildin er frábær staður til að spila á og ég get ekkki beðið eftir að hitta mína nýju liðsfélaga og sanna mig fyrir stuðningsmönnum Newcastle United,\" sagði Jonas.

Áður hefur Jonas verið orðaður við Portsmouth en leikmaðurinn ber gælunafnið \'Spiderman\' þar sem hann fagnar mörkum sínum oft með því að taka upp Spiderman grímu.

,,Það er frábært fyrir okkur að fá Jonas. Ég veit af mörgum öðrum félögum sem höfðu áhuga á honum. Hann er frábær viðbót við hópinn.\"

,,Hann er spennandi leikmaður og ég er viss um að stuðningsmenninir munu njóta þess að horfa á hann,\"
sagði Kevin Keegan stjóri Newcastle.

Sjá einnig:
Fagnaði með því að leika Spiderman fyrir börnin (Með myndbandi)

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.