Fotbolti.net
02.07.08 - 15:33
Hörður Snævar Jónsson

Daniel Alves til Barcelona (Staðfest)

Alves og Henry í baráttunni, núna eru þeir orðnir liðsfélagar.

Alves og Henry í baráttunni, núna eru þeir orðnir liðsfélagar.

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur gengið frá kaupunum á brasilíska hægri bakverðinum, Daniel Alves frá Sevilla.
Þessi 25 ára gamli leikmaður er nú dýrasti hægri bakvörður í sögunni en Barcelona borgaði 23,5 milljónir punda fyrir hann.

,,Barcelona vill byrja að vinna aftur eftir tvö mögur ár og það er mikill heiður að þeir hafa trú á mér,\" sagði Alves.

Alves er fjórði leikmaðurinn sem Pep Guardiola nýr stjóri liðsins fær til sín en áður hafði hann fengið varnarmennina Gerrard Pique og Martin Caceseres og miðjumanninn Seydou Keita.

Þá hefur Guardiola losað sig við þá Giovani Dos Santos, Gianluca Zambrotta og Deco og líklegt er að Ronaldinho, Samuel Eto´o og Eiður Smári Guðjohnsen fari líka.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.