02.07.08 - 17:05
Magnús Már Einarsson
Sun Jihai og Greg Halford til Sheffield United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield United fékk í dag tvo leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni en Greg Halford kom til félagsins frá Sunderland og Sun Jihai kom frá Manchester City.
Halford, sem er 23 ára, kemur á árs lánssamningi en Sun Jiahi, sem er þrítugur, hefur gert tveggja ára samning við Sheffield United.
Jihai hefur verið undanfarin sex ár hjá City en hann getur leikið bæði í vörninni og á miðjunni. Halford kom hins vegar til Sunderland frá Reading í fyrra en hefur gengið erfiðlega að festa sig í sessi.
,,Ég hef þekkt Greg í langan tíma, hann er frábær íþróttamaður og hættulegur í föstum leikatriðum,\" sagði Kevin Blackwell stjóri Sheffield United við BBC.
,,Sun Jihai mun koma til okkar í næstu viku. Hann gefur okkur fjölbreytni,\" bætti Blackwell við.

Heimild: BBC