02.07.08 - 17:36
Magnús Már Einarsson
Jo til Manchester City fyrir metupphæð (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gengið frá kaupum á brasilíska framherjanum Jo en hann kemur til félagsins frá CSKA Moskvu. Kaupverðið hefur ekki gefið upp en City hefur þó greint frá því að Jo sé dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Nicolas Anelka var dýrasti leikmaður Manchester City frá upphafi þegar hann kom til félagsins á þrettán milljónir punda frá PSG árið 2002. Talið er að Jo hafi hins vegar kostað um 18 milljónir punda
Jo, sem er 21 árs gamall, hefur gert fjögurra ára samning við City en hann var í þrjú ár hjá CSKA og hjálpaði liðinu á þeim tíma að vinna fjóra titla.
,,Ég ákvað að koma til Manchester City því þetta er félag sem sýndi mér meiri áhuga, þrátt fyrir að ég hafi einnig fengið önnur tilboð,\" sagði Jo.
,,Eftir að ég talaði við stjórann (Mark Hughes) var ég mjög ánægður. Mér var sagt að Manchester City sé félag á uppleið. Við getum farið langt, það er okkar markmið. Við hugsuðum um þetta og ákváðum að koma til Manchester City út af þessari ástæðu.\"
,,Það félag sem sýndi einnig áhuga opinberlega var Valencia. Ég veit líka, eftir að hafa séð fjölmiðla að það voru önnur félög sem sýndu áhuga,\" sagði Jo.

Heimild: BBC