Fotbolti.net
02.07.09 - 16:01
Magnús Már Einarsson

Miguel Angel Moya til Valencia (Staðfest)

Miguel Angel Moya til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valencia hefur keypt markvörðinn Miguel Angel Moya frá Real Mallorca.
Moya er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir fjögurra ára samning en hann verður kynntur fyrir fjölmiðlum síðar í dag.

Kaupverðið ku hljóða upp á fimm milljónir evra og það gæti hækkað um eina milljón evra í viðbót síðar meir.

Moya, sem er 25 ára, verður þar með dýrasti markvörður Valencia frá upphafi.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.