02.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Nuno Gomes til Braga (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portúgalska félagið Braga hefur samið við framherjann reynda Nuno Gomes. Gomes kemur frítt til Braga en samningur hans við Benfica rann út á dögunum.
,,Þetta er eins og fyrsti dagurinn minn í skólanum,\" sagði Gomes þegar hann var kynntur sem leikmaður Braga í gær.
Gomes var í tólf ár hjá Benfica en hann lék einnig með Fiorentina á Ítalíu um tíma.
Þessi 34 ára gamli leikmaður er fjórði markahæsti leikmaður portúgalska landsliðsins frá upphafi með 29 mörk í 77 leikjum.

Heimild: Reuters