02.07.11 - 11:35
Magnús Már Einarsson
Stephan Lichtsteiner til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus hefur keypt svissneska hægri bakvörðinn Stephan Lichtsteiner frá Lazio á níu milljónir punda.
Lichtsteiner stóðst læknisskoðun hjá Juventus fyrr í vikunni og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra ára samning.
Lichtsteiner kom til Lazio frá Lille árið 2008 en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Juventus fær í sumar á eftir Michele Pazienza, Andrea Pirlo og Reto Ziegler.

Heimild: Sky