Fotbolti.net
02.07.11 - 10:04
Magnús Már Einarsson

Scott Carson til Bursaspor (Staðfest)

Scott Carson til Bursaspor (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Scott Carson, markvörður West Bromwich Albion hefur gengið til liðs við Bursaspor í Tyrklandi.

Þessi 25 ára gamli Englendingur gekk frá samningum við félagið í gær en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
,,Ég er mjög spenntur, þetta lítur út fyrir að vera frábært félag,\" sagði Carson.

Carson lék alls 118 leiki með WBA en hann kom til félagsins frá Liverpool á 3,25 milljónir punda sumarið 2008.

Bursaspor endaði í þriðja sæti í Tyrklandi á síðasta tímabili og mun því leika í Evrópudeildinni næsta vetur eftir að hafa verið í Meistaradeildinni í fyrra.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.