02.07.11 - 17:15
Magnús Már Einarsson
Andy Reid til Nottingham Forest (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur samið við miðjumanninn Andy Reid en hann gerði tveggja ára samning við félagið.
Þessi 28 ára gamli Íri kemur frítt til Nottingham Forest frá Blackpool þar sem hann spilaði síðari hlutann á síðasta tímabili.
Reid kom til Blackpool frá Sunderland í janúar en lék einungis fimm leiki með liðinu.
Hann mun núna ganga til liðs við sitt gamla félag Nottingham Forest en hann lék þar á sínum yngri árum áður en hann fór til Tottenham árið 2005.
,,Ég sé í hvaða átt félagið stefnir og þetta er eitthvað sem ég vil vera hluti af,\" sagði Reid eftir að hann skrifaði undir.

Heimild: BBC