Fimm stór félög að eltast við Semenyo - Man Utd í viðræðum um nítján ára miðjumann - Arsenal hefur áhuga á leikmanni AC Milan
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
Kiddi Jóns framlengir - Var í viðræðum við annað félag
Jóladagatalið: Elínborg gaf viðtal í sturtu eftir leik
Fer yfir næstu skref á Laugardalsvelli - „Setjum mikla pressu á þetta“
Jóladagatalið: Hugleysingjar dauðans
Jóladagatalið: Eiður Smári gekk út úr viðtali
Óþægileg óvissa en gerðist svo hratt - „Þarf að byrja á að virða þetta skref"
Jóladagatalið: Dansaði að hætti Boris Lumbana
Jóladagatalið: Fituprósenta og Framsókn
Jóladagatalið: Vidic er fokking leiðinlegur
Viktor Örn: Sjóaðir í að standa upp við mótlæti
Andri Rafn: Ákveðinn léttir og mikil gleði að ná fyrsta sigrinum
Jóladagatalið: Baldur Sig og lága kvöldsólin
Höskuldur: Við Íslendingar ættum að fara kannast við þetta lið
Aron Snær: Svo hringir bara Kári Árna
Ólafur Ingi: Þá held ég að sigurinn skili sér
Jóladagatalið: Vona að þeir hafi verið á baki en ekki með hann í lúkunum
Jóladagatalið: Hvernig er að ganga í Feneyjum?
Jóladagatalið: Misskildi spurningu fréttamanns - „Setti hársprey og svona“
Jóladagatalið: Hægðir og lægðir
banner
   fim 02. júlí 2020 22:55
Gylfi Tryggvason
Davíð Smári: Hann er búinn að skamma mig mjög oft
Davíð Smári Lamude.
Davíð Smári Lamude.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, var að vonum sáttur eftir 3-0 sigur sinna manna á Njarðvíkingum. „Níu stig, níu mörk og ekkert á okkur. Það getur varla orðið mikið betra en það.“

Lestu um leikinn: Kórdrengir 3 -  0 Njarðvík

Hvað fannst honum um frammistöðu sinna manna? „Við vorum skilvirkir en mér fannst við ekkert spila neitt æðislega vel. Þeir svosem pressa ágætlega og voru fínir þannig séð. Við ætluðum bara að spila fótbolta og sækja á þá en það gekk ekki allt upp. Við vorum í smá basli með að láta boltann vinna en þeir lokuðu vel á okkur.“

Aðspurður út í breytingar sem gerðar voru á byrjunarliðinu sagði hann mikla breidd aðalástæðuna. „Ef við erum ekki ánægðir með suma þá eru aðrir að banka á dyrnar. Það er ástæðan fyrir að liðið er svona gott. Það verða allir að vera á tánum.“

Albert Brynjar var tekinn út af þegar hann vantaði eitt mark í þrennuna. „Hann er búinn að skamma mig mjög oft fyrir að taka sig út af þegar hann er að detta í þrennuna. En það eru menn sem bíða á bekknum og þurfa að fá mínútur. Út á það gengur þetta.“
Athugasemdir
banner
banner