Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   fös 02. júlí 2021 23:14
Victor Pálsson
Copa America: Perú áfram eftir magnaðan leik
Mynd: Getty Images
Peru 3 - 3 Paraguay (7-6 eftir vítakeppni)
0-1 Gustavo Gomez ('11 )
1-1 Gianluca Lapadula ('21 )
2-1 Gianluca Lapadula ('40 )
2-2 Junior Alonso ('54 )
3-2 Yoshimar Yotun ('80 )
3-3 Gabriel Avalos ('90 )

Það fór fram virkilega skemmtilegur slagur í Copa America í kvöld er Perú og Paragvæ áttust við í 8-liða úrslitum.

Alls voru sex mörk skoruð í venjulegum leiktíma en lokatölur þar urðu 3-3 jafntefli.

Paragvæ var á heimleið þegar stutt var eftir en Gabriel Avalos jafnaði metin í blálokin til að tryggja vítaspyrnukeppni.

Í 8-liða úrslitum Copa America er ekki notast við framlengingu en hún verður þó til taks í úrslitaleiknum sjálfum.

Í vítakeppninni þá klikkaði Paragvæ á þremur spyrnum gegn tveimur hjá Perú sem fer því áfram í undanúrslit keppninnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner