Fotbolti.net
02.08.06 - 10:02
Þórður Már Sigfússon
Ítalska deildin

Vieira til Inter Milan (Staðfest)

Vieira snýr aftur til San Siro

Vieira snýr aftur til San Siro

Canon

Mynd: Getty Images

Franski miðvallarleikmaðurinn Patrick Vieira hefur gengið til liðs við Inter Milan frá Juventus, fyrir 6,5 milljónir punda.
Vieira skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið og er enn einn leikmaðurinn sem yfirgefur herbúðir Juventus eftir hneykslismálið yfirgripsmikla sem skók ítalska knattspyrnu í sumar. Fabio Cannavaro og Emerson gengu til liðs við Real Madrid fyrir stuttu og Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram voru seldir til Barcelona.

Juventus keypti Vieira frá Arsenal síðastliðið sumar fyrir 13,7 milljónir punda og tapa því verulega á þessum viðskiptum.

Didier Deschamps, nýráðinn knattspyrnustjóri Juventus, vonast til þess að salan á Vieira sé sú síðasta fyrir komandi leiktíð á Ítalíu.

Vieira, sem var á mála hjá erkifjendum Inter, AC Milan, um miðjan síðasta áratug, hafði einnig verið orðaður við Barcelona, Manchester United og Newcastle United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.