Fotbolti.net
02.08.07 - 00:08
Hafliði Breiðfjörð

Þóra Björg Helgadóttir til Malmö (Staðfest)

Þóra Björg Helgadóttir.

Þóra Björg Helgadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þóra Björg Helgadóttir landsliðsmarkvörður Íslands er gengin í raðir sænska liðsins Malmö og lék sinn fyrsta leik fyrir liðið í 4-2 tapi gegn Umea í sænska bikarnum í kvöld.
,,Hún er ein af fáum markvörðum í evrópu í hæsta gæðaflokki, hún er sterk og einbeitt í leik sínum. Ég er gríðarlega ánægður með hvað þetta gekk fljótt fyrir sig og ánægður með með samvinnu Anerlecht og sænska knattspyrnusambandsins," sagði Jörgen Petersen þjálfari Malmö.

Þóra verður þriðji Íslendingurinn í Malmö en fyrir hjá liðinu eru Dóra Stefánsdóttir og Ásthildur Helgadóttir systir Þóru sem er frá keppni þessa dagana vegna meiðsla en hún þarf í aðgerð vegna þeirra.

Þóra spilaði nokkra æfingaleiki með Malmö er hún heimsótti Ásthildi systur sína og þekkri því eitthvað til hjá félaginu. Hún gerði fyrr í sumar samning um að ganga til liðs við Anderlecht frá OHL en bæði lið eru í Belgíu. Nú er hún komin til Malmö til að leysa af Carloine Jönsson markvörð liðsins sem sleit krossbönd á dögunum.

Besta knattspyrnukona heims, hin brasilíska Marta, skoraði tvö af mörkum Umea framhjá Þóru í leiknum í kvöld.

Heimild: Vefsíða Malmö

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.