Fotbolti.net
02.08.07 - 08:03
Sindri Þór Þorgeirsson

Jürgen Colin til Ajax (Staðfest)

Ajax fá liðsstyrk

Ajax fá liðsstyrk

Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski varnarmaðurinn Jürgen Colin hefur snúið aftur til Hollands og gengið til liðs við stórlið Ajax en hann kemur þangað eftir tveggja ára veru hjá enska fyrstudeildarliðinu Norwich.
Colin sem er 26 ára ólst upp hjá PSV Eindhoven og spilaði fjóra leiki með þeim í hollensku úrvalsdeildinni tímabilið 2001/2002, þaðan fór hann síðan á lán til belgíska liðsins Genk og hollenska liðsins NAC Breda.

Colin fór síðan til Norwich og spilaði með þeim 58 leiki í fyrstu deild, hann gæti fengið að spreyta sig í meistaradeildinni í vetur ef að Ajax komast í gegnum undankeppnina, en Colin skrifar undir eins árs samning með möguleika á tveimur árum í viðbót.

Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.