02.08.07 - 10:29
Tómas Þór Þórðarson
Javi Garrido til Manchester City (Staðfest)

Sven búinn að næla sér í fimm leikmenn.

Mynd: Getty Images

Sven búinn að næla sér í fimm leikmenn.

Mynd: Getty Images
Manchester City eru hvergi nærri hættir á leikmannamarkaðinum og nú í morgun lönduðu þeir spænska varnarmanninum Javi Garrido.
Þessi 22ja ára varnarmaður skrifaði undir 4 ára samning við City eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Garrido sem kemur í gegnum unglingastarf Real Sociedad er fimmti leikmaðurinn sem Sven Göran fær til sín í sumar en áður hefur hann fengið þá Rolando Bianchi frá Reggina, Gelson Fernandes frá FC Sion, Geovanni frá Benfica og Martin Petrov frá Atl. Madrid.

Heimild: Sky Sports