Fotbolti.net
02.08.07 - 12:57
Magnús Valur Böðvarsson

Manchester City kaupir Corluka (Staðfest)

Manchester City kaupir Corluka (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City eru ekki hættir á leikmannamarkaðinum og liðið hefur fest kaup á króatíska varnarmanninum Vedran Corluka frá Dinamo Zagreb.
Corluka sem er 21 árs getur leikið bæði sem hægri bakvörður og sem miðvörður.

Hann er talinn kosta City um 8 milljónir punda en hann er sagður hafa skrifað undir 5 ára samning við Manchester City.

Þetta eru sjöttu kaup Sven Görans í sumar en hann hefur aldeilis tekið til í herbúðum City. City bíður nú eftir að leikmaðurinn fái atvinnuleyfi svo hann verði löglegur með liðinu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.