02.08.09 - 16:40
Gunnar Gunnarsson
Pavel Pogrebnyak frá Zenit til Stuttgart (Staðfest)

Pavel Pogrebnyak mun spila með þýska liðinu Stuttgart í vetur.

Mynd: Getty Images

Horst Heldt framkvæmdastjóri Stuttgart var ákaflega ánægður að bjóða Pavel Pogrebnyak velkominn til félagsins eftir að rússneski landsliðsmaðurinn hafði staðist læknisskoðun í gær.
Pavel Pogrebnyak er 25 ára gamall leikmaður og kemur frá Zenit í Pétursborg en kaupverðið er ekki gefið upp. Pogrebnyak skrifar undir fjögra ára samning við Stuttgart en hann kemur til með að verða arftaki Mario Gomez í sóknarleik liðsins en hann var seldur til Bayern München í sumar.
,,Við erum hæstánægðir með að hafa landað þessum samningi. Pavel uppfyllir allar okkar væntingar sem við erum að leitast eftir enda öflugur markaskorari líkt og Mario Gomez,\" sagði Horst Heldt.
Heldt neitaði þeim sögusögnum að leikmaðurinn hefði kostað þriðjunginn af þeim 30 milljónum evra sem félagið hagnaðist á sölunni á Gomez og sagði að verðmiðinn væri í kringum 5 milljónir evra.
,,Pavel átti aðeins sex mánuði eftir af sínum samningi hjá Zenit þannig að 10 milljónir evra hefði klárlega verið alltof há upphæð. Við höfum alltaf sagt að við ætluðum ekki að kaupa leikmenn fyrir stjarnfræðilega háar fjárhæðir,\" sagði Heldt í samtali við þýska sjónvarpsstöð.
Stuttgart virðast því hafa náð að landa leikmanninum til sín á frekar sanngjörnu verði en einnig náðu forráðamenn félagsins að fá Alexander Hleb á lánssamningi frá Barcelona í síðustu viku.
Pogrebnyak hélt aftur til Rússlands til að ganga frá sínum málum varðandi atvinnuleyfið en hann mun síðan snúa aftur til Þýskalands á mánudag þar sem hann verður formlega kynntur sem nýr leikmaður Stuttgart.

Heimild: Soccernet