Fotbolti.net
02.08.11 - 09:59
Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA fékk spænskan framherja (Staðfest)

Þór/KA fékk spænskan framherja (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Spænski framherjinn María Pérez Fernández er gengin til liðs við kvennalið Þór/KA fyrir lokaslaginn í Pepsi-deild kvenna og þátttöku liðsins í Meistaradeild kvenna í haust.

Hún er sóknarmaður sem hóf feril sinn hjá Sporting de Gijon en fór þaðan til Oviedo Moderno 16 ára gömul.

Fimm árum síðar gekk hún til liðs við Levante eftir að Oviedeo féll úr deildinni. Á fyrsta ári skoraði hún 15 mörk með liðinu en sumarið 2010 fór hún til Prainsa Zaragoza þaða n sem hún fór ári síðar í ítölsku deildina til Heraldo de Soria. Hún er nú komin til Þór/KA.
Eins og við sögðum frá fyrir helgi hafði Þór/KA einnig fengið hina bandarísku Diane Coldwell en báðar eru komnar með leikheimild með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.