Fotbolti.net
02.08.11 - 10:13
Hafliði Breiðfjörð

Zoltan Gera til WBA (Staðfest)

Zoltan Gera er kominn aftur til WBA.

Zoltan Gera er kominn aftur til WBA.

Canon

Mynd: Getty Images

WBA staðfesti í morgun að Zoltan Gera sé snúinn aftur til félagsins en hann kemur til þeirra án greiðslu eftir að samningur hans við Fulham rann út. Hann er 32 ára og skrifaði undir tveggja ára samning við WBA með möguleika á ári til viðbótar.
Gera hefur verið í endurhæfingu eftir meiðsli á ökkla en hún hefur gengið eftir áætlun og hann verður því líklega klár í slaginn að nýju um miðjan september.

Hann lék áður í fjögur ár með WBA til ársins 2008 og skoraði þá 25 mörk í 155 leikjum. Þaðan fór hann til Fulham þar sem Roy Hodgson núverandi stjóri WBA var þá við stjórnvölinn.

,,Eftir að hafa ákveðið að endurnýja ekki samning sinn hjá Fulham hefur Zoltan snúið aftur til félagsins þar sem hann byrjaði á Englandi,\" sagði Hodgson. ,,Síðast þegar hann spilaði hjá WBA var hann mjög vinsæll hjá öllum, og ekki síst stuðningsmönnunum.\"

,,Ég þekki hann auðvitað mjög vel og fannst hann frábær þau tvö ár sem við unnum saman hjá Fulham þar sem hann var mikilvegur hluti af liðinu sem gerði vel á þessum árum.\"

Heimild: Vefur WBA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.